UM FYRIRTÆKIÐ

KRST lögmenn

KRST lögmenn byggja á áratugalöngu starfi Kristjáns Stefánssonar sem lauk lögfræði árið 1974 og hóf eigin lögmannsrekstur 1. júní 1975. Kristján hafði kynnst Hilmari Ingimundarsyni lögmanni og héldu þeir saman skrifstofur sínar allar götur þar til Hilmar féll frá haustið 2010. Með árunum bættust synir Kristjáns í eigendahóp stofunnar, eftir því sem þeir kláruðu lögfræðina og unnu að uppbygg-
ingu hennar. Eftir því sem stofan stækkaði ákváðu menn að taka upp nafnið KRST lögmenn, en nafnið vísar til upphafsstafa Kristjáns: Kr.St.

Um áratugi hafa lögmenn stofunnar aðstoðað bæði einstaklinga og fyrirtæki og gætt hagsmuna þeirra. Rauður þráður í starfi stofunnar hefur verið að aðstoða fólk í viðkvæmri stöðu, hvort heldur brotaþola við að leita réttar síns, eða þá sakaðra manna, sem svara til gagnvart ríkinu. Einnig hafa lögmenn mikla reynslu af bótarétti hvers konar og hafa sótt skaðabætur fyrir hönd skjólstæðinga sinna, hvort heldur vegna slysa eða annarra bóta. Á síðari árum hafa fasteignaverkefni stofunnar orðið æ umsvifameiri og starfsmenn hennar hafa komið að stórum uppbyggingarverkefnum, sem og samskiptum við fjármálastofnanir, vegna þeirra.

STARFSMENN

Kynntu þér teymið sérfræðinga

Jón Bjarni Kristjánsson Hæstaréttarlögmaður
5516412